Viðskiptavinir Fjölmiðlar Svör
Spurðu spurningar

Meðlimir

Spyrvöktun fyrir þig er ókeypis 

Á annað þúsund netfanga eru nú skráð hjá Spyr en þar getur fólk valið um það efni sem það vill fylgjast með.  Með því að skrá sig í vöktun hjá Spyr eða sem meðlim í hóp færðu tölvupóst með slóð sem lætur þig vita þegar tiltekið efni er birt á Spyr.  Veldu það sem þú hefur mestan áhuga á.

 

Gestaspyrlar.

Ef þig langar að vera með í að senda inn fyrirspurnir um fréttir fjölmiðla eða sérstök fyrirtæki eða málefni, þá skráir þú þig sem gestaspyril.  Einkenni fyrirspurna gestaspyrla eru stuttar og hnitmiðaðar spurningar þar sem persónulegum skoðunum viðkomandi er sleppt. 

Gestaspyrlar geta velið um þátttöku í einstaka málaflokkum og hér eru nokkrir vinsælir málaflokkar sem hægt er að skrá sig í:

Samfélagsmál, heimili, heilbrigðismál, menntun

Viðskipti, atvinnulíf, nýsköpun, tölvur og tækni

Kosningar 2013

Viðtöl, einstakt tækifæri til að setja sig í spor blaðamanna og taka þátt í að búa til viðtöl lesenda Spyr við þekkt fólk

Skráðu þig sem gestaspyril á Spyr.

 

Svarvöktun

Ef þú vilt að Spyr láti þig vita þegar svar við þinni spurningu berst eða svör frá ákveðnum aðilum berast, skráðu þig þá á Spyr.  Í skráningarpóstinn lætur þú vita hvaða aðila þú ert að bíða eftir svörum frá.

Skráðu þig í svarvöktun á Spyr

 

Fyrirtækjavöktun

Sumir óska eftir því að vakta fréttir frá ákveðnum fyrirtækjum sem hægt er að spyrja nánar út í og fylgjast með svörum hjá.  Í fyrirtækjavöktun Spyr skráir þú netfangið þitt og nafn þess fyrirtækis/stofnunar sem þú vilt vakta.

Skráðu þig í fyrirtækjavöktun á Spyr

 

Heilsuráðgjöf Spyr

Þú færð ókeypis ráðgjöf hjá þjálfurum World Class , Lukku á Happ og Homopata því reglulega eru birtir heilsupistlar sem lesendur geta spurt nánar út í.  Þeir sem eru skráðir í þessa vakt fá tilkynningu um allt heilsutengt efni á Spyr, pistla og svör. 

Skráðu þig í heilsuráðgjöf á Spyr

 

Foreldraráðgjöf Spyr

Foreldrar þekkja það allir hvað það er í rauninni að mörgu að huga við uppeldi barna og unglinga.  Þeir sem skráðir eru í Foreldraráðgjöf Spyr fá tilkynningu um allt efni sem birt er fyrir foreldra og hjón á öllum aldri. 

Skráðu þig í foreldraráðgjöf á Spyr

 

Leshringur Spyr

Mörg hundruð einstaklingar skráðu sig á fyrstu vikum leshrings Spyr en í leshring Spyr eru teknar  fyrir 2 – 3 bækur á mánuði fyrir fólk að lesa.  Sérfræðingar Forlagsins spyrja 3 spurninga með hverri bók sem hver og einn getur svarað, bæði með innsendum svörum til að birta á Spyr eða bara til að svara sjálfur við lestur hverrar bókar.  Vinsæl afþreying á Spyr. Meðlimir í leshring Spyr geta alltaf átt von á verðlaunum eða tilboðum frá Forlaginu.

Skráðu þig í leshring Spyr

 

Draumahópur Hrannar

Meðlimir í Draumahóp Hrannar fá tilkynningar í tölvupósti þegar draumráðningar eru birtar og annað efni frá einum virtasta spámiðli landsins:  Hrönn Friðriksdóttur.  Hrönn skrifar stundum pistla og ráðgjöf til lesenda og Spyr fylgist líka náið með því hvað rætist úr völvuspá Hrannar fyrir árið 2013. 

Skráðu þig í draumahóp Hrannar á Spyr

 

Flott fólk eru vinir Spyr á Facebook.

Einföld leið til að fylgjast með því helsta á Spyr er að gerast vinur Spyr á Facebook. 

Endilega líkaðu við Spyr á Facebook og smelltu hér!

 

Skúbbið á Spyr

Einstaka sinnum birtast upplýsingar á Spyr sem hvergi hafa birst annars staðar.  Þeir sem vilja vera viss um að fá þessar upplýsingar beint í æð.

Skráðu þig í skúbbið á Spyr.

Skilaboð til þín

  • Spurning beinist að: Draumur Spurningin: Sæl, Mig dreymdi draum í nótt en ég hitti kunningjakonu mína sem heitir Karen. Við erum e-ð að tala um aðra kinnina (andlit) á henni og það eru 6 stk hár á kinninni sem hún er ekki sátt við eða er svona að velta þessu fyrir sér :/ Segist síðan þurfa að fara í fjósið.. og er e-ð að moka þar.. vakna síðan við þetta... þannig það var ekkert meri.
  • Lista yfir þá sem ekki hafa svarað spurningum almennings má sjá undir flipanum Beðið eftir svörum.                                              
  • Það vakti athygli á Spyr þegar Margrét Tryggvadóttir upplýsti lesendur um að stjórnmálaflokkarnir fengju um 1,3 milljarða króna úr ríkissjóði, óháð því hvort þeir kæmu mönnum inn á þing (þurfa að ná 2,5% í kosningum).                       
  • Þrælmerkileg spurning frá lesanda var um hvort prestar ættu ekki að gefa kvittun fyrir greiðslum vegna skírna, ferminga, giftinga. Í svari kom í ljós að ekkerft eftirlit er með þessum greiðslum.                                    
  • Það var heilmikið fjör hjá N1 á grænum apríl, allir starfsmenn á Dalvegi dúðuðu sig upp óg fóru út að taka til.                                                                                                                                      
  • Vissir þú hvernig Ólafur Darri leikari hætti að reykja?  Í svari til lesanda sagðist Ólafur hafa hætt með því að lesa bókina Easy Way To Stop Smoking.                                                                                    
  • Fyrsti aðilinn til að svara spurningu lesanda á Spyr var Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborg........og hann var snöggur að því!                                                
  • Sú fyrirspurn sem hvað oftast hefur verið synjað á Spyr snýst um rekstur fangelsa og stjórnun fangelsismálastofnunar.  Spyr samþykkir ekki fyrirspurnir þar sem höfð eru niðrandi orð um viðkomandi aðila eða ef fram koma staðhæfingar til lítillækkunar á einhverjum.